Já ég er á lífi..Kolbrún Anna Vignisdóttir
tvem mánuðum og nokkrum kílóum síðar....
Ég afsakan
innilega leti mína í bloggheiminum þar sem að facebook er að taka allan minn
tíma í lífinu. Segi svona..
Er bara búin að hafa nóg á minni könnu undanfarið og mikið af fréttum skal ég
segja ykkur.
Ætli þetta verði ekki svoldið langt blogg svo ég vara ykkur bara hér ef þið farið að fjara út..
Það er allavega dágóður tími liðinn síðan ég bloggaði þar sem að Obama var nýkjörinn forseti og bara name it.
Janúar mánuður
endaði svo að ég skellti mér til Sydney með “foreldrum” mínum.
Langt ferðalag þangað skal ég segja ykkur, lögðum af stað héðan um 2 á
fimmtudegi keyrðum í 8 klst straight að bæ sem heitir Dubbo og gistum á hóteli
eina nótt eftir langan og ótrúlega heitan akstur þar sem það var um 40°hiti
úti.
Keyrðum svo í u.þ.b. 5 klst til annars bæs sem heitir Lithgow og tókum lest
þaðan inn í bogina sem tók svo 4 tíma! Svo er fólk að kvarta að keyra vestur,
pff...
Við dvöldum hjá
ríku vinafólki Mark & Jan sem eiga heima í sydney. Þau fóru með okkur að
skoða fræga óperuhúsið og Sydney harbour bridge og ég var svo undrandi á þessu
þar sem ég hef beðið eftir að sjá þessa hluti svooo lengi! Mætti segja að ég
hafi nánast tárast þegar ég skimaði yfir þetta allt saman. Spes að upplifa
þetta samt svona ein og þau öll sem
ég er með auvðitað búin að sjá þetta trilljón sinnum.
Allur pakkinn
stolt Ástrala/Dana

Gjugg í borg..

Mikið af svona skal ég segja ykkur, ég keypti auðvitað geisladiskinn..
En við erum að
tala um mestu mannmergð sem ég hef á ævi minni séð í Sercular Quay sem er
semsagt miðpunktur sydney þar sem allt þetta er. Maður fer semsagt með ferju
sem fer undir brúna, til Luna park sem er einskonar skemmtigarður
og þaðan yfir
til Darling harbour sem er frekar frægt. Mikið af ríku liði sem dvelur á flottu
hótelunum þar.

Ég og darling harbour...

tók þessa í ferjunni til baka..
Eftir þennan túr
fórum við og löbbuðum um “The Rocks” sem er elsti partur sydney frá 1770. Fullt
af söfnum, veitingastöðum, mörkuðum. Mjög sjarmerandi og fallegur staður að
mínu mati.
Keypti mér soldið af túristadrasli einsog sannir túristar gera að sjálfsögðu! Og auðvitað skó..
Það var svo fín tilbreyting að skella sér í alvöru bíó þar sem að það suckar hérna í bænum sem ég bý, fórum á stórmyndina Slumdog Millionaire sem er hreint út sagt geðveik!! Fékk alveg bíóstemninguna í mig sem ég sakna ekkert smá við ísland, fór svo oft í smárabíó á sunnudögum haha
Á Mánudeginum 26.
Jan var svo þjóðardagur Ástrala og var ekki amarlegt að vera stödd í Sydney á
þeim tíma. Maður dressaði sig smá upp og fórum svo í hádegismat á einhverju
setri og sáum óperuhúsið og brúna og allt frá þeim stað sem mér fannst geggjað.
Einsog ég sagði var fólkið ríkt sem við vorum hjá og allt í hæsta gæðaflokki 
Við stelpurnar snæðandi.. 
Ég og dóttir fólksins sem við vorum hjá þarna úti..
Á þriðjudeginum
fórum við svo til baka með lest til Lithgow þar sem að bróðir Jan býr , semsagt
“frændi” minn, vorum hjá þeim í 2 nætur að sjá líitð nýfætt barn. Meðan við
vorum þar tóku þau mig að sjá “The three sisters” sem eru þrjú fræg fjöll og
þar var allt morandi í hrísgrjónum!! Má ekki segja svona ég veit en jeminn eini hvað það er til mikið af
þessu...
Svo fórum við í
mjög áhugaverða hellaskoðun og leiðin þangað var frekar athyglisverð, keyrðum á fjalli, mjóasta veg sem ég hef á ævi minni keyrt, þetta var einsog í bíómynd ég skeit nánast á mig úr hræðslu..
útsýnið frá veginum, sjáið hvað þetta er hátt!!

staðurinn sem við fórum í hellaskoðunina..
Kolla caveman..

og ég var mjöög undrandi á því öllu saman líka þar
sem þetta leit ekkert út einsog venjuleg hellaksoðun, mjög fallegt skal ég
segja ykkur.
Svo lauk janúar og skólafríið....
Febrúrar:
Þessi mánuður byrjaði í minningu Pabba míns þar sem hann hefði orðið 48 þann 1.feb, blessuð sé minning hans.
Það er alveg slatti búið að ske síðan síðast.
Skólinn er byrjaður aftur á fullu og ég er alveg að fýla það ágætlega þar sem ég á fullt af vinum í skólanum núna og í fínum fögum og svona. Er einmitt byrjuð að spila fótbolta hérna úti og er í skólaliðinu, æfi reyndar með strákaliðinu sem er fínt. Svo er ég líka byrjuð í íþrótt sem heitir Netball. Til víða um veröldina en auðvitað ekki Íslandi. Svipað og körfubolti en aðeins flóknara.
Er síðan búin að vera mikið með stelpunum (Emmu, Jade & Jazmin)og erum við orðnar rosalega nánar og ég er farin að hafa áhyggjur að það verði erfitt að kveðja þær, en einsog með allt annað verður bara að hafa það..
Mars:
Ég fór í aðra húsbátarferð
þann 6. Mars og hún var bara mjög skemmtileg eins og sú fyrri. Auðvitað allt
öðruvísi þar sem að það vantaði allar selpurnar sem voru í fyrri, voru semsagt
bara ég og skin einu skiptinemarnir og svo bara fólk úr AFS hópnum. Gerðum
margt skemmtilegt, lærði skemmtilegasta spilaleik sem ég hef spilað, fórum í drykkjuleiki og svo auðvitað búningakvöld
og þemað var Halloween.

báturinn..
Lögðum svo í hann til baka á mánudeginum og allir í misgóðu ástandi haha.
Svo var dress-up partí hjá stelpu í skólanum síðustu helgi, 20. Mars. Þemað var Cowboy/Indian og ég fór sem kúreki þetta sinn þar sem ég hef verið indjáni áður.
Ég skemmti mér
konunglega einsog alltaf!


Svo er ég einnig byrjuð í ræktinni með “systur” minni henni Juarne og við förum alltaf á morgnana kl. 6:30 takk fyrir! Og fyrir þá sem þekkja mig er ég alls ekki gefin fyrir morgnana svo þetta er heljarinnar framtak fyrir mig, heyr heyr!
Framundan:
Já framundan hjá mér er...
Fótboltaferð með skólaliðinu 1-2 apríl
Bushtrek í skólafríinu einhverntímann í lok apríl
Borgarferð til Adelaide með íþróttabekknum mínum að sjá Australian Football í byrjun maí
Brúðkaup Juarne og Luke í byrjun Júní
ÉG HEIM 26. Júní ..
Ég segi þá bara einsog hún Svala Bjögg, ÉG HLAKKA SVO TIL!
Allavega, þá er þetta held ég bara komið,
Sakna allra í
tætlur

-Kolbrún Anna
AdelaideKolbrún Anna Vignisdóttir
Já sælt veri fólkið.
Eitthvað er búið að kvarta um bloggleysi en það eru að sjálfsögðu ýmsar ástæður fyrir því J
Svo ég segi frá áramótunum mínum í stuttu máli þá voru þau mjööög svo spes. Fórum uppí sveit með svona 30 öðru fólki og það var byrjað að drekka um daginn og ekki borðað fyrr en um 11 um kvöldið vegna mistaka eldamennskunnar og svo á slaginu 12 þá skutu allir úr innibombum, æ þið vitið svona dæmi sem að skraut skýst út úr, já það voru einu kvellin sem ég heyrði! Sá ekki einn flugeld en fór nú ekkert að skæla yfir því.
En er búin að vera í Adelaide í 2 vikur hjá systur Jan og manninum hennar. Og ég fór semsagt þangað með þeim á mánudegi 5.jan.
Fyrsta daginn minn í Adelaide þann 6. Þá fór ég í mollið í borginni. Hitti þar Corbin og Karlee vinkonu hans sem býr í Adelaide. Svo eftir smá tíma færðum við okkur í annað moll sem heitir Marion og ég eeeelska það moll: ) Náði að versla e-h smá, ooog auðvitað skó !


Svo fór ég í Cleleand wildlife park 8.jan, sem að er einhverskonar dýragarður. Þar gat ég komið upp að kengúrum og gefið þeim að éta og klappað Koala og allskonar skemmtilegt.


Tasmanian devil
Goana

Koala birnir sofa 20 klst á dag og Koala er frumbyggja orð og þýðir no water þar sem þau drekka ekkert. 
Dingo. stórhættulegir hundar sem að maður má ekki eiga nema vera með e-h mega leyfi. var saga hér í ástralíu að kona var í tjaldi með barn og Dingo kom um nóttina og tók barnið og svo át það:s en sumir voru á því máli að hún hafði falið það og látið það svelta og e-h rugl. en já svo er búið að gera huges gyrðingu utan um e-h hluta ástralíu svo þessir hundar séu ekki á þeim stöðum þar sem að þeir eru of hættulegir og drepa allar kindurnar.

Þetta er án efa lang stærsta kengúra sem ég hef séð.
semí smeyk
ég og Koala. Hann hét Ted!

Mössuð kengúra
Wallaby sem að er einhverskonar önnur gerð af kengúrum. Mikið minni. 
Emu ! mög svo heimsk dýr.
með þennan allsvaðalega fót


ég á look outinu. Þetta er semsagt Adelaide!
Á föstudeginum 9.
Þá kom dóttir Lorraine sem er konan sem ég gisti hjá að sækja mig, hún heitir
Janelle. Hennar familíja ákvað að fara í smá útileigu og taka mig með. Við
settum upp eeeldgamalt tjald frá 1960 sem tók tíma en hófst svo loksins. Síðan
um kvöldið þá fórum við til Victor harbour, borðuðum kvöldmat þar saman og
hittum Lorraine og Paul manninn hennar þar og sáum mörgæsir : )

Janelle & ég


Harper sonur Janelle.
Það var ekkert smá spennandi fannst mér, það sem ég hef aldrei séð mörgæs!! En við þurftum semsagt að bíða þar til sólin settist niður og þá koma þær úr sjónum og upp á land. Við máttum ekki taka neinar myndir af þeim þar sem að þær þola ekki flassið. Eeeen auðvitað þarf ég alltaf að vera algjör klaufi . Ég tók semsagt flassið af myndavélinni minni og slökkti svo á henni til að hafa það bara tilbúið. En neinei svo kveiki ég á henni aftur og smelli mynd og flass kemur og ég bara ó shit og konan sem er svona guide horfði ekkert smá illu augnaráði á mig og ég roðna náttúrulega ekkert smá haha. En þá kom í ljós að maður getur ekki gert ákveðna stillingu, slökkt og svo kveikt og ætlast til að stillingin sé ennþá J Þar hafið þið það. En já aftur að mörgæsunum. Komst alveg að nokkrum staðreyndum um þessi dýr. Semsagt þegar þau eignast unga mörgæsaparið þá skiptast þau á því að liggja á egginu og annað fer í leit að mat í sjónum, svo koma þau aftur og fóðra hinn makann og svo snýst þetta við. En svo þegar unginn fæðist þá er hann oft skilinn eftir í einhverja daga meðan foreldrarnir leita að æti og svo koma þau og æla því upp og fóðra litla unganum. Já lúfa líf einsog hann Palli segir !



Anthony & Lorraine 
Svo voru bara næstu dagar í þessari útileigu mjög rólegir. Var reyndar frekar kallt miðað við fyrri daga og ég var í hettupeysu og buxum nánast allan tímann.
En já fórum í göngutúra, og svo keyrðum við að strönd og löbbuðum um hana, ekkert smá falleg strönd um umhverfi og ég tók alveg nokkrar myndir. Var bara of kallt til að synda.

Janelle , Harper og Pheonix. 





Anthony og krakkarnir að hlaupa niður sandhæðina. 
Eftir þessa
útileigu voru maurar og kengúrur orðnir bestu vinir mínir. Maður sér þetta
ALLSTAÐAR! Kengúrurnar komu upp að tjöldum hjá fólki á nóttuni að leita af mat
og gramsa í ruslinu og það er bara mjög normal hér. 


Á sunnudegi kom ég svo “heim” eða til Lorraine og Paul.
Næsta dag þá fór ég í moll rétt hjá þar sem ég gisti og spókaði mig um þar. Svo um kvöldið horfði ég á 66th annual golden globe awards og fann mér þónokkrar myndir sem ég vil sjáJ Sérstaklega Slumdog millionaire og Revolution road. En nóg um það.
Á þriðjudeginum
13.jan þá fórum við á ströndina um morguninn. 41°hiti en mjööög mikið rok. Ég
lærði að snorkla sem ég var í smá örðugleikum við fyrst þar sem maður má bara
anda með munninum og það er nú ekki einsog að segja það að prufa það en það er
erfitt að stjórna bara einu opinu! En svo hafðist það nú og við snorkluðum yfir
á rifið sem var nú alveg semí langt í burtu og þá var maður nú stoltur af öllu
þessu skólasundi úr seljaskóla! En gleðin var ekki svo lengi þar sem að á
leiðinni til baka þá var ég brennd af Marglyttu! Sem að er mjöööög vont og líka
á þennan óþægilega stað, innan vert lærið! Og þið getið ímyndað ykkur hvernig
ég labbaði, (einsog ég var búin að skíta á mig ) Já, einsog þið sjáið er ég
ekki alltaf sú heppnasta. Við flúðum svo ströndina út af roki 




rifið 

Næstu dagar voru afar rólegir, ég var bara “heima” án tölvu og komst að því að ég er mjög svo háð þessum hlut. Þannig það má segja að ég og talvan hafi tekið okkur smá “pásu” frá okkar sambandi.
Á föstudegi 16. Jan kom ég heim í rútu og hafði alveg 7klst til að hugsa um daginn og veginn. Held ég hafi aldrei hugsað jafn mikið og ég hugsa hér úti. Þá ekki neitt vont en þá stundum get ég bara ímyndað mér hvernig allt er þegar ég kem heim og þá hlakkar til í mér J Einsog ég hef sagt svo oft þá fer nú að styttast í þetta, nú er jan á enda og þá þýðir það 5 mán!
Ég sótti upptökuna síðan ég var í viðtali í útvarpinu og vá hvað það er fyndið að hlusta á sjálfan sig tala ensku !!:/
En held þetta sé komið nóg. En er að fara til Sidney á fimmtudag eða föstudag í u.þ.b. viku ;) Þá get ég loksins séð það sem túristar sjá, óperuhúsið o.fl ;)
Hafið það gott í
þessari endalausu kreppu og mótmælum, sé að þjóðin er á fullu í mótmælum og
lögreglan beitandi kylfum á lýðinn. Halelúja.
Og já 20.jan þá á minn yndislegi bróðir afmæli :) 19 ára kallinn sko! Til hamingju enn og aftur.
ég og mínir elskulegu skór.
Kveð að sinni. Og bless Bush!
jól, jól, jól ..Kolbrún Anna Vignisdóttir
Sæll veri landinn
og gleðilega hátíð.
Ákvað að skella inn einu bloggi þar sem að jólin mín eru nú svolítið frábrugðin ykkar. Maður verður samt alltaf latari og latari að blogga útaf þessu blessaða facebooki. Set allar myndir og svona inn þar svo að þið ættuð nú að geta séð það þar líka ..
Ég byrjaði
allavega á því að hafa smá afmælispartí heima hjá mér þann 20. des .. J Mjög fínt bara, ekki alltof margir og
bara notalegt.

Jazmin, Emma, ég, Jade & Amy 


dansi dansi .. 

Þann 23. Des vorum við með matarboð hérna. Vinkona foreldra minna kom í heimsókn með krakkana sína og við borðuðum kalkún og svínabóg og fleira skemmtilegt.


Þann 24. Des var
frekar normal dagur hjá mér bara. Fórum um hádegi á e-h pöbb og borðuðum
hádegismat með vinnufelögum Jan & Mark. Svo kláraði ég nokkrar jólagjafir
niðrí bæ og hitti Jade & Amy. Svo um kvöldið þá fór ég með þeim að skoða
jólaskreytingarnar á húsunum í bænum. Svo fórum við bara til Jade um kvöldið.
já jólaskreytingar í 40°hita er nú ekki e-h sem maður sér daglega .. 
þetta hús vann keppnina .. 
niðurtalning
25.des var ég
vakin um 7. Opnuðum fyrstu pakkana sem var frá fjölskyldunni hér. Nýjasti I-pod
nano og svona speakers sem maður setur hann í með vekjara og útvarpi. Svo fórum
við til Kyle frænku. Þar var Mark dressaður upp sem jólasveinn fyrir litlu
stelpurnar þeirra
Ella litla og Mark
Svo fórum við í
morgunmat til e-h fólks og svo aftur heim að opna restina ad pökkunum J Loksins pakkana frá íslandi ..
Vil þakka öllum eim sem sendu mér kveðu eða gjöf ég er mjööög ánægð með það J J Svo fórum við um hádegið í jólahlaðborð á
fínum veitingastað sem var bara fínt. Eg verð að segja að hátíðarnar hér snúast
mikið meira um drykkju samt en mat. Hér byrjar fólk um morguninn alveg fram á
kvöld. Heyrði nú síðan í
fjölskyldunni heima sem var soldið tilfinningarík stund fyrir mig, þar sem ég
gat heyrt í öllu og au opnandi gjafir og það vantaði bara mig L en samt sem áður þá varð ég ekkert of
leið yfir því enda ekkert gaman að svekkja sig á þessu og njóta bara dagsins 
Jan(mum) systir hennar Laurane og Nan Green 
Kieren (bro), Mark(dad) ? , og Paul maður Laurane
Darren & Kyle(dóttir Laurane) 
Kieren & ég
Vorum á þessu
hlaðborði til svona 3 leytið og þá fórum við aftur til Kyle sem er með sundlaug
og allir skelltu sér í laugina og svona enda um 35° NICE!

ég með "mömmu og pabba" 
Laurane, ég og Jan
Var þarna til svona 9 leytið og þá
fór ég í partí hjá Jazmin þar semég hitti vini mína og svona. Ooooog um 12 þá
var ég 17 og allir sungu HAPPY BIRTHDAY TO YOU ! önnur upplifun, en gaman.

emma & Trent
fólk .. 
ég og Jazmin partíhaldari ..
Snemma morguns þann 26. Þá keyrðum við til Wentorth sem er rétt hjá Mildura sem er aðeins stærri bær en Broken Hill. Þar á Kevin og Sonia heima. Sonia er systir Mark. Þar hitti ég fjölskylduna hans sem eru mjög fín. Allt voða jolly lið
Eiddum svo
helginni þarna og ég skellti mér á sjóskíði og fleira skemmtilegt 

alveg að koma.. 

Svo fer að detta í áramótin blessuðu og þá verður það nú skrítið. Ég mun fara upp í sömu sveit á miðvikudag og ég fór í um daginn og ekki á ég eftir að sjá neina flugelda. Þar sem maður þarf að hafa flugeldaleyfi í líunni :O
Annars þá vil ég nota tækifærið hér og óska öllum GLEÐILEGS NÝS ÁRS og TAKK fyrir það gamla : ) sé ykkur hress á nýju ári í júní
Og já btw. Fékk ég að heyra um daginn að ég mun koma í BYRJUN júni ekki LOK .. Þannig að e-h um 9 held ég það sé :O! Styttist alltaf í þetta, 5 mán rúmir komnir :D:D Og ég fýla þetta í BOOOTN!
Jólakveðjur, Kolbrún Anna.
síðstu helgar ..Kolbrún Anna Vignisdóttir
Hæhæ.
Jæja ætla að segja frá síðustu 2 helgum
Búið að vera brjálað að gera. Stelpurnar að fara á morgun L svo að þær eru búnar að hafa kveðjupartí og svona, svo vill maður náttúrulega eyða sem mestum tíma með þeim síðustu dagana þeirraL .. verður mjög skrítið án þeirra.
En einsog ég sagði í síðasta bloggi þá fór ég í bekkjapartí á fös 28 nóv ...

Emma Perry & eg .. 

Corbin & ég ..
Svo á laugardeginum 29. var trúlofunar-partí hjá Juarne og Luke, svo seinna um kvöldið kveðjuparti hjá Önnu frá Danmörku , semsagt fyrrverandi “systur” minni. var semsagt grímu-partí

Ég & Carolina
Emma
Anna með dönsku grímuna sína 
Emma, Skin & ég .. 
Anna, Corbin og serían hennnar .. 
við allar 7 ... 
ég & Bill 
Ég & gamli hundurinn minn
Svo helgina eftir 5. Var kveðjupartí hjá Viki & emmu.

Corbin!
Þemað voru litirnir á fánunum þeirra, semsagt Emma er frá frakklandi og Viki frá Tékklandi. Þannig blátt, rautt, hvítt
Line, & Emma

Hópmynd .. ég-Corbin-Emma-Nicole-Nic-Skin-Anna-Carolina-Loccy
Loccy & ég .. 
Emma & ég með þennan geggjaða bleika himinn .. 
hrikalega gaman hjá okkur að hoppa ... 
Jazmin & ég 
svo var farið í laugina!!
Á laugardeginum 6. Þá fórum við skiptinemarnir í jóla-skrúðgöngu. Þá förum við semsagt aftur í
á svona pallbíl og gefum AFS bæklinga. Fullt af öðrum bílum líka frá allskonar stöðum sem gefa nammi og
e-h, svo er keyrt niður aðalgötuna. Bara einsog við mundum gera þetta niður
laugarvegin og svo standa fullt af krökkum og fjölskyldum á götunni og horfa. Komum
miresegja í blaðinu og allt á mánudeginum eftir ;)

Anna, Carolina, ég , Emma

Við allar saman aftur í 
fánarnir okkar
Svo beint eftir
þetta, fórum við í AFS christmas party. Þá borða allir bara góðan mat, einhvers
konar jólahlaðborð og svo komu allir með pakka svo skiptumst við á pökkum og
getið hvað:O ég fékk að sitja í kjöltunni á jólasveininum ;) víj 



fengum þessa hatta að gjöf frá AFS . 
Myndir af síðasta skóladeginum hjá stelpunum ;) Við öll í skólabúningnum .. svo fórum við á "the top of the Hill" og tókum myndir ..


Loccy, Emma, Corbin og ég 




bekkurinn sem allir taka myndir af sér á
--------------------------
Já þá er þetta bara það sem ég vildi koma á framfæri í þessu bloggi ;)
Bææææo :)
Kolbrún Anna Vignisdóttir
HALLÓÓ!!
Sorry hvað ég er búin að vera löt að bloggaL ..
Jæja þá er maður
kominn í nýja fjölskyldu og maður er svona að venjast því. Mér líður allavegana
vel hérna, mikil breyting en góð breyting;)
Maður er komin með eldri systkini og aðeins meiri ró hérna. Maður er svosem
vanur að vera litla stelpan og mér finnst það bara fínt !
Skólinn er orðinn
mikið betri, ég er búin að eignast fullt af Áströlskum vinum síðan ég fór í
skólaferðalagið. Er búin að breyta nokkrum fögum.. þetta er stundataflan mín og hún er semsagt þannig að það
eru 10 dagar á henni svo er dagur 1 og 6 mánudagar svo að þetta eru 2 vikur og
svo byrjar þetta alltaf aftur .. tók mig smá tíma að átta mig á þessu .. ekkert
alltof mikil breyting en það er semsagt pása alltaf kl 9:30-9:50 svo er hádegismatur
um 12-1 .. Maður saknar samt 5 mín pásurnar í versló, gat alltaf skroppið á
klósettið eða vatnspásur með stelpunum.. Maður fer að sakna alveg skrítunustu
hluta á köflum .. Einsog ég talaði við mömmu á skype í gær og heyrði allt í
bakgrunn, sjónvarpið og fannst einsog ég væri nánast heima, einsog fréttir, á
hverjum degi fyrri kvöldmat þá mátti sko ekki missa af þeim, það eru svona
litlit hlutir sem að maður saknar. Og smárabíó á sunnudögum, haha .. allavega
ætla hætta röfla um það, þá er þetta stundataflan ..
|
1
Maths Maths Food technology Food technology English English Sport coaching Sport coaching 6
Maths Maths English English Food technology Food technology Study line Study line |
2
Study line Study line Food technology Food technology English English Sport coaching
7
Sport coaching Sport coaching Maths Textiles design Textiles design English Study line |
3
Textiles design Textiles design Study line Study line Food technology English English Maths
8
food technology food technology sport c Sport c English English Maths Maths |
4
Sport coaching Sport coaching Food technology Textiles design Textiles design
9
Study line Study line Textiles design Textiles design Food tec Food tec |
5
Study line Study line Textiles design Textiles design Maths Maths Sport coaching Food technology 10
Sport c Sport c Textiles d Textiles d Maths Maths Study line english
|
Það sem er búið
að vera ske hjá mér er að ég fór í húsbátsferð fyrir 2 vikum ;) Var bara MJÖG
gman, alveg mjög frábrugðið öllu sem ég hef gert..
Þetta er semsagt bara bátur sem að er með herbergjum, klósetti, eldhúsi, stofu,
svo á toppnum er svona borð og e-h og við vorum alltaf í sólbaði á toppnum ;)
Alveg geggjað gaman. Fórum á föstudahsmorgni og komum heim á mánudegi.
Skipt í 2 hópa ,
um svona 17 fólk allt í allt.
Svo vorum við bara að partíast á kvöldin, fórum
að synda og sólbað og svona á daginn. Geggjuð aðstaða að hafa partí ef maður pælir í því, fer bara með bátinn
niður ánni, leggur honum á stað sem enginn er og enginn getur kvartað yfir
hávaða og ekki neitt!!! Snilld
alveg..



Stelpurnar mínar!

Ég, Viki & bill

Carolina, Anna, Viki, Emma & Ég .. 
Á laugardeginum var svona Coctail-night, þá áttum við að dressa okkur upp í búninga sem byrja á A, F eða S .. Ég var Santa einsog þið sjáið ! 

Bill student( einn sjálfboðaliðinn) Emma smurf og ég ..
Svo bara skóli og
svona, átti eina rólega helgi þarna .. Svo þessa helgi er ég að fara í
afmælispartí á föstudag hjá strák í skólanum, á laugardag er trúlofunarpartí
hjá Juarne og Luke, sem eru “systir” mín og unnusti hennar. Gaman að segja frá
því , en ég fór að leita af gjöf, meina hvað gefur maður í svona gjöf? Er það
ekki bara svona leiðilegt einsog kertastjaka eða e-h í búið. Jú held það,
skellti mér allavega á svaka lekkera sallatskál og disk. Frekar fyndið þegar ég
keypti það, sagði bara við konuna að ég þarf trúlofunargjöf og mér væri
eigilega sama hvað það væri bara e-h sniðugt. Svo sá ég þennan disk og hugsaði,
disk? Vá en leiðileg gjöf.. en allavega þá er ég að gefa henni það og vona að
hún verði hæstánægð með sallatskálina og diskinn.
Sama kvöld eru kveðupartí hjá fyrrverandi systur minni, haha vá allt svo
ruglingslegt, en þið skiljið mig, Önnu .. Hún fer eftir 2 og hálfa viku. Díjjj
svo stutt í það. ! Svo að þetta er frekar bókuð helgi ;)
Svooo helgina eftir það er líka soldið busy, kveðjupatí hjá hinum stelpunum, Viki, Carolinu og Emmu. Þær að fara á sama tíma og Anna.. Svo á Laugardeginum er e-h jólaball AFS ;) Verður stuð !
OOOG JÁ! Fékk
pakka frá Íslandi í fyrradag!!! Alveg huges bros sem kom!
En yndislega mamma mín sendi mér fullt af jólapökkum frá íslandi, og svo sendi
hún harðfisk, nammi og jóladisk og svonaJ vá ég er svo þakklát að fá svona ;) TAKK
MAMMA! Allavega þorði ég ekki að opna strax og ég fékk hann, en opnaði hann í
dag, Line & Skin voru hjá mér og þær smökkuðu harðfiskinn og vá, hefði átt
að taka video af þeim smakka hann! Haha ég útskýrði svo fyrir fjöllunni hvernig
þessi fiskur væri þurrkaður og eitthvað , sagði að við borðum þetta svona
einsog snakk bara, þau bara vá hvað þetta er hart, gátu ekki bitið fiskinn!!
Svo kvörtuðu þau að húsið stinkaði af fiskilykt haha! Vá ég var bara hlægjandi
allan tímann J
Fósturmamma mín sagði að hún ætti svona vél hvað köllum við þetta
vakúmpökkunarvél ? já ætli það sé ekki kallað það, hef bara heyrt móður mína
segja þetta orð einhverntimann og er ekki með á hreinu hvernig það er skrifað,
allavega vildi hún endilega vakúmpakka harðfiskinn eftir ég opnaði hann svo
hann mundi nú haldast góður!
Já þetta var nú meiri fiskisagan , (hahaha gleði og gaman )
Heyrðu svo líður mér bara svona svakalega vel held ég bara ;) engin mega heimþrá og ekki neitt!! Og ég sem hélt þetta yrði svo erfitt, alveg búið að gera mann undirbúin í helvíti nánast á þessu námskeiði á íslandi, búið að lísa e-h svaka rússíbana tilfiningum sem maður myndi upplifa og ég veit ekki hvað !!
Kannski á ég þennan rússíbana bara eftir? Neinei vona ekki maður er svo sterkur, er náttla búinn að fá smá harðfisk í blóðið núna svo vonandi verð ég enn sterkari ;) haha
Kemur kannski soldið heimþrá um jólin! Er alveg oft með mömmuþrá en hún verður þarna eftir 7 mán J svo ég lifi þetta af ..
Bið bara að heilsa ykkur íslendingum í kreppunni! Vonandi eruð þið öll að lifa þetta af, haha (kannski meiri áskorun fyrir ykkur að lifa af en fyrir mig? Neinei segi svona !)
(set kannski fleiri myndir inn seinna )


(ein af þeim sem ég sakna mest í heimi í lokinn ! )
BYYYYYEEEEEEEEE :D:D:D
-KOLBRÚN!
myndirKolbrún Anna Vignisdóttir
Jæja, hér koma myndir inn...við AFS hópurinn vorum að safna meiri pening og vorum með bás og elduðum ofan í fólk á e-h hátið sem var í október, Red desert blue sky ;)


Eftir það fórum við í e-h smá partí ..



Fórum svo í skólaferðalag til Flinders Rangers ..









Komum heim á föstudegi og ég fór í partí á föstudeginum með vinum frá skólanum ;)

Ég og Gilbert

Ég, Jade & Gilby ..

Jade, ég & Carla
Helgina eftir það þá var mér boðið í Halloween partí, ég fór sem Pocahontas !

Gerði mig til með Jade, Jazmin, amy og e-h vini þeirra sem er hommi, man ekki hvað hann heitir !

pétur pan og Jazmin sjóræningi..


Jade álfur, Jazmin og Amy tinkerbell



Partíhaldararnir, Tayla og Natalie


Brittany, cooper & Ben



skin, emma og ég ..


Á laugardeginum fór ég svo í kveðjupartí hjá kærasta Emmu sem er stelpa í skólanum ;)

Emma & Jade áður en við fórum ;)



Jazmin, ég & Emma
Fór svo til Adelaide með "mömmu" og "systur" minni á miðvikudegi og komum heim á sunnudegi.. Juarne sem er systir mín núna er að gifta sig í Júní og vorum að kaupa brúðarkjól á hana.. gistum hjá systur Jan (mömmu) og það var bara mjög gaman, verslaði og svona ;)

Þetta er Jan

og þetta er Juarne

Juarne með krakka dóttir systur Jan , Pheonix & Harper

dóttir systir Jan býr aðeins fyrir utan Adelaide á svona einskonar sveitabæ ...


Harper að máta nýju skóna mína!





þetta er frekar ástralskt, ice-coffee , fáanlegt í allskonar brögðum !

e-h föt sem ég verslaði ..

gömlu brúnu með nýju kicksunum mínum !
bilad netKolbrún Anna Vignisdóttir
Hallo allir saman..Takk fyrir comment og studning i sidasta bloggi.
Netid er bilad sem stendur i nyja heimilinu minu, tessvegna hef eg ekkert bloggad..
Var ad koma fra adelaide i dag, forum eg, Jan (fosturmamma) og Juarne (systir) ..
Vorum ad skoda giftingarkjola a Juarne tar sem hun er ad fara gifta sig i juni. Svo vorum vid ad versla og svona skemmtilegt, kem med staerra blogg tegar netid verdur komid i lag...
Ekki heppileg stund ad netid bili, tar sem eg er i fjarnami i verslo og tad fer ad koma prof !!
En allavega er eg heil a hufi :D
Kem med blogg fljotlega:)
-Kolbrun
nýtt upphafKolbrún Anna Vignisdóttir
Verið þið sæl
öllsömul.
Mikið búið að vera á seyði hjá mér.
Í fysta lagi fór ég
í 6 daga skólaferðalag til Flinders Rangers. Það var bara alveg mjög gaman.
Þetta var með náttúrufræði-bekknum mínum og við vorum aðallega að skoða steina
og e-h voða skemmtilegt. Skildi voða lítið í þessu þar sem það er ekki auðvelt
að læra öll ensk orð um þetta efni. Alveg geggjað umhverfi þarna, fjöll og
grænir skógar, minnti mig mest á Afríku eða e-h þess háttar. Set myndir af þessu
hérna inn seinna.
Nýjustu fréttir
af mér eru að ég er að skipta um fjölskyldu. Leið og ég kom heim úr skólaferðalaginu
á föstudegi þá settumst við niður og töluðum saman fjölskyldan, og það er komin
upp sú staða að þau eru að flytja í annan bæ í öðru fylki kallaður Mildura. Þar
sem að þetta er annað fylki og svoleiðis þá má ég ekki skipta um skóla og
flytja og allt það... Þetta leggst ágætlega í mig, kannski fyrir bestu, var búin
að finna á mér e-h skringilegt mundi koma þar sem það hafa verið smá fjölskylduörðugleikar
undanfarið. Forgangsröðin verður að vera fjölskyldan númer 1 og svo annað. Svo
að þau ætla að byrja upp á nýtt á öðrum stað og reyna að “bjarga”
fjölskyldunni. Ætla ekki að flyta alveg strax, ætla að leyfa Önnu að klára sína
tvöl en hún á 7 vikur eftir, en það er best fyrir mig að skipta stax áður en ég
er búin að eyða meiri tíma af dvölinni minni hér. Annars eru komnir 3 mánuðir ,
vá þetta er flótt að líða ... 8 eftir !
Ég mun semsagt
flyta til fólks sem eru í AFS hópnum og ég þekki. Heita Jan & Mark og eru
held ég á fimmtugsaldri. Eiga tvö uppkomin börn sem búa samt ennþá heima ..
Stelpu sem heitir Juan (22)og er trúlofuð , svo strák (24) sem að býr ennþá
heima og vinnur í námunum. Er að fara þangað í dag. Pakkaði öllu í morgun, það
var frekar spes stund að pakka öllu saman aftur þar sem maður er búin að byggja
heimili.
En með svona getur maður aldrei vitað, það er ekkert endilega þannig að hver og
ein manneskja fitti inn í hvaða fjölskyldu sem er , og kannski er þetta bara
fyrir bestu. Stundum skrítið að hafa yngri krakka þar sem ég er ekki vön því,
en hjá nýju fjölskyldunni er ég yngst aftur.
Allavega þá ætla ég
bara að henda þessu bloggi inn svona stuttu bara aðeins smá fréttir hvað er í
gangi !
Er alveg með
mesta stresshnút ú maganum , minnir mig á þegar ég steig útúr flugvélinn og
vissi ekkert við hverju var að búast ! Á svona stundum fæ ég alveg sjúka heimþrá
og vildi að ég hefði mömmu mína, klettinn minn ! en ég verð bara að vera
sterk og líta á þetta sem hluta af reynslu minni hérna.
Mun skrifa aftur
flótlega og henda inn myndum ;)
-Kolbrún Anna !
BUSH-TREKKolbrún Anna Vignisdóttir
Jæja, mér sýnist fólk vera búið að bíða eftir bloggi
Er búin að vera soldið busy uppá síðkastið, fórum á AFS fund fyrir bushtrek og það var mög gott veður ...
(þetta átti að vera voða fyndin mynd, ég með poppkorn á rassinum ) 
(AFS)


(Anna, Line, ég, Skin, Carolina )
Allavega er ég nýkomin heim úr 9 daga ferð í middle of nowhere. 30 krakkar saman frá öllum stöðum í heiminum.
Ferðin byrjaði á föstudegi 26. sept. Slepptum skóla þennan dag svo að við biðum eftir nokkrum krökkum sem komu heim til okkar. Þar voru krakkar sem að eru frá stað sem heitir Verdonga. Kynntumst þeim aðeins, en svo var tími til kominn að fara í rútu til Silverton. Staður sem er ekki svo langt frá Broken Hill, þar dveljum við næstu 2 nætur.
Þegar þar var komið hittum við fleiri krakka sem höfðu komið með rútu frá Adilaide. Þennan dag vorum við bara að kynnast krökkunum og spila footy og leika okkur e-h... Biðum eftir restinni af krökkunum sem voru að koma alla leið frá sidney! 16 klst ferðalag fyrir þau. Vá getiði ímyndað ykkur, í einu landi tekur allan þennan tíma að komast á annan stað! .. Allavega þá komu þau og við fengum öll Bush-trek peysu, bol og derhúfu. Svo þessa nótt gistum við öll úti í pokunum okkar eða “swag” sem ég sagði ykkur frá. Frekar kósý að sofa svona í hring kringum varðeldinn ;)

(okkur leiddist þegar við komum til Silverton)

hópmynd í silverton ,
Laugardagur: vöknuðum snemma, einsog alla ferðina. Síðan var bara morgunmatur og svona, svo gerði fólk sig reddí til að fara á CAMELDÝRSBAK! Það var alveg nett fyndið sko. Held ég hafi hlegið mest allan tímann þar sem að það var röð af cameldýrum og ég hafði eitt sona flykki fyrir aftan mig og það var alltaf að sleikja mig. Held að það hafi verið e-h skotið í mér :P haha, allavega þá var þetta frekar fyndið on skemmtileg reynsla.
(einkenniegt dýr!)
(mer fannst þetta voða fyndið, Eero og Johan á hinu)

(löbbuðum smá spöl öll í röð)
Eftir þetta þá var ferðinni haldið í námurnar. Þar fórum við í túr í underground mines. Held það sé bara námur á íslensku .. En já, það var frekar athyglisvert að læra hvernig fólk vinnur neðanarðar og eyðir ævinni sinni þarna og fólk deyr ungt sem vinnur þarna. Held hann hafi sagt að fólk er heppið ef það nær fertugsaldri en flestir deyja milli 20-30... já ljúfa líf.!
(Guðrún sæta og ég í eyðimörkinni!!)
(áður en við lögðum að stað í óvissuna!!)

(þesir voru æðislegir, Eero og Johan!!)
Eftir þetta fórum við á e-h pub þar sem að flaska var sett í buxurnar manns og svo kartafla á ennið og sagt er að þú eigir að reyna að miða kartöflunni ofan í flöskuna, en það sem er gert er að meðan þú ert að einbeita þér að því þá kemur kona og sprautar vatni í flöskuna og þið getið rétt ímyndað ykkur hver útkoman er...
(sést ekkert alltof vel, eeeen)

Svo fórum við í e-h gallerí, skrítin list hérna í Ástralíu elli .. mikið málað frumbyggja og skóga og svona ... annars athyglisvert
Komum svo bara aftur á staðinn sem að við gistum á og borðuðum kvöldmat og eftir það fórum við í karokee eða hvernig sem það er skirfað og það var bara svaka för! Gistum aftur úti, held maður sé bara orðin soddan nátturubarn!! Það er samt alveg geggað að horfa upp í himinninn og sjá milljón stjörnur, þar sem að það eru engar háar byggingar eða ljós og ekki neitt þar sem við vorum, svo það er alveg magnað. Svo southern cross er auðvelt að sjá, en þið sem vitið ekki hvað það er , þá er það sem er á ástralska fánanum stjörnur sem maður sér í himnunum!
Sunnudagur : vakna, borða, rúta til Broken Hill aftur. 
(sést yfir alla broken hill)
(í broken Hill!)
Þar fórum við á safnið sem er hér, og á því er “the big picture” já ég misskildi það e-h aðeins og hélt að það væri e-h skúlptúr, en allavega löbbum við inn í þetta herbergi með veggum sem eru allir útmálaðir og ég stend þarna í hópnum, var aðeins sein þar sem ég var í símanum að tala við mömmu. En já ég kem inn og segi ,,where is this big picture?” svo byrja allir bara að hlægja og ég skil ekki neitt þá er það bara beint fyrir framan mig og þessi big picture er semsagt málaðir veggir, á að vera stærsta málverk í heimi, en ég fatta þetta ekki alveg.... annars athyglisvert enn og aftur !
Borðuðum svo hádegismat í parkinum sem er hérna, meatpie... ef þið vitið ekki hvað það er þá er það semsagt einhverskonar baka með kjöti inn í, veit að svíþjóð er með þetta, þannig mér fannst þetta ekkert skrítið, en já þetta er bara smjördeigsbaka með köti inn í.
Fórum svo á stað sem að skúlpúrar eru, steinskúlptúrar er kannski betra orð, en þar var smá labb upp að staðnum sem þetta er á, og þar sáum við þessi fyribrigði! Mjög cool að vera á þessu fjalli sem þetta er á, getur séð niður á Broken hill!
tími til kominn að fara á næsta áfangastað sem restin af ferðinni var á. En sá staður er Tirlta Station. Það er einhverskonar bóndabæli sem að maður á sem heitir Ian. Þetta er semsagt risa jörð sem hann á, og við vorum bara á einum stað sem við gistum í , e-h skonar risa skúr eða, æj skrítið að útskýra!
Komum okkur bara fyrir þarna inni, borðuðum og svona, svo um kvöldið var bara svona kynningarkvöld. Allir stóðu upp og sögðu hluti um sig og svona.
(svona gistum við í)
(þetta gerðist ef þú gleymdir að hafa nafnspaldið á þér)
(allir fánarnir, íslenski er þarna á endanum)
Mánudagur : ábyggilega lærdómsríkasti dagurinn! Fórum öll aftan í þennan risa pallbíl og keyrðum um alla jörðina. Enginn rúntur sko, alveg klst. Akstur og við öll einsog e-h innflytjendur aftan á risa bíl skoppandi þarna aftan á og ekkert malbik. Ekki það besta skal ég segja ykkur, en maður ætti nú að vera vanur þessu sveitalífi er þaggi? Allavega fékk ég tré í hausinn á mér og það er ekki besta tilfinning á þessum hraða og þar sem allt hér er svo þurrt þá er þetta einsog að fá baseballkylfu í hausinn, haha! Neinei segi svona...
Jæja eruð ábyggilega öll spent hvað var svona lærdómsríkt, en næsti staður var þar sem að beljurnar eru. Þar áttum við að tækla kálfa. Ég & Line vorum alveg illa tilbúnar í þetta, það þarf semsagt 2 til þess að gera þetta, og einn þarf að taka hausinn og hinn bakhlutann, þetta er erfiðara en það lítur út fyrir en maður þarf að hafa þetta mjög skipulagt. Okkar gekk annars sæmilega, fengum kálf í stærri kanntinum og það er ekki gott að láta dýrið hoppá á tána á manni, en okkur tókst þetta í 3ju tilraun. Það sem gerist þá eftir að maður hefur dýrið í jörðinni er að kálfurinn er eyrnamerktur og ef það er kk þá er skorið eystun af. 
(að vela hvaða við ætlum að ráðast á.. )

(greyið litla)
(naut)
(frekar cool, naut að rífast )
Eftir þessa reynslu tók en lærdómsríkara við. Óléttupróf á kú. Það er semsagt gert svona....
Stinga hendinni inn í rassinn og finna fóstrið... Hugrekki ? ÓJÁ!!
neinei ég var með hanskaJ en ég skildi ekki alveg hvernig ég átti að finna fóstrið, held hún hafi verið að sinna öðru þegar ég var með hendina þarna inni svo að ég sagðist bara finna e-h sem væri einsog coco pops!!
Já þetta var mánudagurinn, alveg þessu venulegi mánudagur bara... haggi !
Svo fórum við bara aftur “heim” og átum og svo voru leikir um kvöldið og svona skemmtilegt!
Þriðudagur: Þennan morgun fórum við með rútunni til “White Cliffs”! það er semsagt staður þar sem að fólk býr neðanjarðar og inn í fjalli. Það til að húsin eru kaldari og e-h þar sem að ástralía er heitt land. En þar byrjuðum við á að fara á safn þar sem við lærðum um námugröft hérna í white cliffs. 96% af opal í heiminum er í Ástralíu fyrir fólk sem vissi það ekki. Opal er gerð af stein og er oftast með grænbláum lit. En á þessu safni gátum við keypt opal skartgripi og svoleiðis.

(fullt af opal stöffi )
Eftir þetta fórum við að skoða svona típískt hús sem að fólk býr í inn í fjalli. Ekkert smá cool !:D

(eldhúsið)
(gangurinn )

Svo fórum við bara aftur þar sem við gistum og borðuðum kvöldmat, KENGÚRU og geit, kengúran er alltílagi, soldið villt bragð en leist betur á geitina!

(vorum alltaf í borðtennis, og ef maður tapaði þá fékk maður kúlu í magann!!)
Miðvikudagur: Þennan dag var “the olympics” drullugaman!! Þá var okkur skipt upp í lið, purple(sem ég var í), Green, Blue, Yellow, Orange, red .. allavega, þá vorum við að gera allskonar þrautir allan daginn og endaði á reipitogi og leða í miðjunni, svo var leðjuslagur eftir það!! Ekkert smá gaman..
(Ég & Ash, vorum saman í purple team!!)
(Brock að gefa mér Wet-willy, ég & Emma)

(reipitog)
(leðjuslagur!!)

(Broken hill stelpur :emma, carolina, ég, Mayuni(japan) )
Annars þá vann yellow team, svo orange í öðru og blue í þriðja!
Þetta kvöld voru allir frekar þreyttir, en ég fór bara að sofa og sumir fóru í feluleik úti í myrkrinu sem hefur eflaus verið gaman þar sem að þú sérð ekki neitt í myrkrinu þarna úti! ..
Fimmtudagur : Þennan dag fórum við á safn með fullt af frumbyggjadóti og svo löbbuðum við um svæðið. Semsagt svæði sem að á að vera ósnert og maður má varla labba þar sem er ekki stígur, frekar friðað, þar sem að þetta á að vera ekta frumbyggjasvæði. Lentum í svoldlu fyndnu þarna... vorum að labba þarna um svo alltíeinu kemur þessi frumbyggjamaður , ,,bíðið nú hæg”! spyr okkur hvað við erum að gera og að Ian, gaurinn sem að á staðinn sem við erum á , spyr hann hvort að hann sé með Guidlicense.. sem að er svona uuuu man ekki orðið en allavega svona leifi til að sýna okkur um og það er e-h heljarinnar vesen og við erum hrakin á brott. Svo að við fórum bara á annan stað og sáum e-h fleira stuff og sáum hvernig frumbyggjar skrifuðu í steina og það á að merkja mismunandi tímabil og svoleiðis.

(að labba um )
Skemmtilegast var þegar við fórum í “the rockhole” þá fórum við og löbbuðum langa leið til að finna vatn umvafið klettum og syntum þar í, geggjað flott!
(Sofie og Line báðar frá Danmörku)
(geggaður staður , hoppuðum þarna niður af )

(ég & line )
Svo fórum við bara aftur “heim” og átum og svo var kominn tími til að pakka pokunum okkar og voð fórum öll á stað skammt frá það sem að ekkert var á. Kveiktum risa vaðeld. Svo voru þau með didiridú svona ástralskt hlóðfæri, svo voru þau að kenna okkur frumbyggjadansa sem endaði með meiru með skrípaleik Gaman, en fyndið !
Síðan þá áttum við öll að synga þjóðsönginn okkar, hver og einn frá hverju landi þurfti að standa fyrir framan hina og syngja. Þetta var alltílagi nema frekar vandræðalegt hjá okkur Guðrúnu þar sem við mundum bara viðlagið :S haha já, maður gleymis ýmsu þegar maður er í burtu! En meina, enginn vissi hvað við vorum að segja, svo að skiptir ekki svo miklu !!
Maður svaf nú varla þessa nótt, kannski 2 tíma, vorum bara í allskonar leikjum og skemmtilegt þessa nótt, talandi og svona!!

(fengum að prufa diduridoo)
(Verið að kenna okkur að dansa kántrídansa!!)
Föstudagur: Vöknuðum einhverstaðar í náttúrunni, komum aftur heim! Frekar rólegur dagur... vorum að gera BUSH-TREK banner. Gert hvert einasta ár, en þá teiknar maður fánann sinn og skirfar e-h skilaboð á sínu eigin tungumáli til hinna sem koma næstu ár. Gat ekki séð marga íslenska fána á gömlu bannerunum, en annars gaman að lesa það ;) Þannig ég sá þinn Áróra!
Áttum einnig að skrifa á eina bls á ensku um bush trek og svo er gerð svona bók og safnað blöðum frá öllum, afritað og sent til allra plús myndir J það er frekar sniðugt...
Seinni partinn af deginum var maður eigilega að reyna að keppast við að gera sem mest, kynnast þeim sem maður hafði ekki náð að kynnast þar sem að ferðinni væri lokið daginn eftir.
Sumir fóru og drápu rollu, en það er semsagt gert svona: Eero og Johan vildu endilega sinna þessu verkefni en það var ekkert svo myndalegt að sjá. Ég fór og fylgdist með , fróðlegt, en ógeðslegt!!
Eftir það fórum við að synda í lóninu sem við syntum í hvern einasta dag! Sakna þess!!


Svo var tími til kominn að æfa fyrir “the talent show” þar á allavega hver og einn að koma á svið og gera e-h skemmtilegt... sumir sungu saman og aðrir gerðu e-h heimskulegt... við stelpurnar gerðum e-h mjög ófyndið ... Einn hópur sem Guðrún var í söng ,,Meistari Jakob” á allskonar tungumálum! .. Svo seinna um kvöldið sátum við bara kringum varðeldinn að tala og held að flestir hafi ekkert farið að sofa... margir hverjir sem fóru að sofa vöknuðu hinsvegar með tannkrem útum allt fés!! Haha
(tom frá dóminíska gerði svona )
Fengum alveg heví þrumur og eldingar seinustu nóttina!! mér brá ekkert smá við að sá þetta þar sem við fáum nú ekki svona á íslandi, sumir fóru út og stóðu þar og fengu enga smá sturtu!! haha
(Johan frá svíþóð var með svona pro myndavél og náði alveg mögnuðum myndum af eldingunum ! )
Laugardagur: Kveðjustund L það er ekki gaman að þurfa að kveðja fólk sem maður er búin að ná sterkum böndum við og veit að maður á kannski aldrei eftir að hittast aftur!
Þessi ferð var alveg ógleymanleg og æðisleg! Mæli með þessu fyrir krakka sem fara til Ástralíu! Einsog þið sjáið kannski á þessu bloggi er þetta svo allt öðruvísi en maður getur ímyndað, gerði svo margt sem mér hefði aldrei dottið í hug að gera !
Annars sorry hvað ég er sein að setja þetta inn, búið að vera mikið að gera.. Er neflilega að taka náttúrufræði í fjarnámi og maður þarf að reyna að ná öllu þegar maður fer í svona frí ...
Á döfinni hjá mér er. Þessa helgi þá eru e-h tónleikar alla helgina hérna í bænum og við í AFS eigum að sá um einn bás til að safna pening, svo að ég held ég eyði helginni minni þar...
Helgina eftir það þá eigum við að labba í heilan sólahring til að safna pening fyrir krabbameinssúka... svo er annað ferðalag, skólaferðalag sem er 19-24 okt!
sjii tíminn fer svo hratt alltíeinu ! allt bókað, sem er bæði gott og slæmt, væri líka fínt að gera verið aðeins bara að slaka og reyna að eignast vini hérna í bænum.. verður vonandi nægur tími til þess ;)
Takk fyrir öll comment haldið áfram !!;D
SET FLEIRI MYNDIR INN SEINNA, ALVEG TONN AF MYNDUM ÚR ÞESSARI FERÐ!!!
Fjölskyldufrí!Kolbrún Anna Vignisdóttir
Sælir lesendur;) Var að koma úr smá fjölskylduferð einsog þið vitið kannski, en ætla segja smá frá því í stuttu bloggi ;)
Föstudagur 12. Sept : við stelpurnar í fjölskyldunni lögðum af stað þennan morgun á stað sem heitir “Fort Courage” svona 3 klst í burtu. Dad og hitt fólkið höfðu komið þarna degi fyrr. Þannig tjaldvagninn, eða hjólhýsi eða hvað sem við köllum þetta var sett upp ;) Sól og blíða þennan dag svo að við skelltum okkur út á bátinn sem að familíjan á, og aftan á settum við lítinn gummíbát sem er kallat “Biscuit” hér, GEGGJAÐ gaman! Náðum ekki að fara á sjóskíðin því vatnið var of kallt fyrir það!
Varð ekkert smá rauð & marin á lærunum og allstaðar eftir þetta þar sem maður skellist í sjóinn og það er ekki það þægilegasta! En Gaman samt sem áður svo að það skiptir engu ;)
Um kvöldið var svo bara grillað og talað saman frameftir kvöldi ;)

(á leiðinni !)

ógeðsleg eðla sem að getur bitið líkamsparta af!

(skin )

(Anna & kaine )

(ég & megan saman)




(duttum af )

(ég ein eftir, megan datt)


Laugardagur : Fórum í næsta bæ sem er Mildura og er í fylkinu Victoria. Vorum þar allan daginn að versla og spóka okkur um, J gerðum svo bara eigilega það sama og kvöldið áður, grillað og setið og blaðrað!

(elska þennan drykk, límonaði!)

(allir saman, konan til vinstri er Karen sem er vinkona mom og feiti gaurinn er sonur hennar, og 3 barnabörn með henni þarna)

(Abby, barnabarnið hennar Karen, alger vitleysingur!)

(skin í netinu!)

(ég elska ís)
Sunnudagur : Þessi morgun byrjaði á egg & beikoni ! svo fórum við aftur þennan dag á the biscuit þar sem Line & skin höfðu ekki testað það!:)
Ég og Line skelltum okkur saman !
Voða gott veður þennan dag og lá í sólbaði restina af deginumJ

(litla krúttið hún Abby !)

(appelsínutré)


(ég & line alveg að fara detta)


(þetta er must í Ástralíu, "Thongs")





(á biscuit með Line)

(eftir á)
Mánudagur: Skítaveður þennan dag svo að við keyrðum aftur til Mildura. Náði að versla mér slatta ;) nenntum voða lítið að gera restina af deginum og láum bara og horfðum á TV!
Þriðjudagur: Pökkuðum saman þennan morgun og lögðum af stað heim!
Loksins komin heim segi ég, sofa í rúmi og bara slappa af!;) náði loksins að tala við móður mína og svona!
Var alveg geggjað veður í vikunni og skelltum okkur í laugina í garðinum , SWEET;) !





Er svo ekkert búin að vera gera neitt sérstakt þessa dagana, er byrjuð í prófum í skólanum, sem eru í þessari viku og næstu svo er tveggja vikna frí, og í því fríi er BUSH TREK;) sem er 9 daga ferð á vegum AFS sem að fullt af krökkum koma saman og gysta í svona swag einsog eg var í í kynningabúðunum, verður ofsa gaman ;)
CYYAAA!
-Kolbrún!
